top of page
Pink Sugar

Bleiki dagurinn 23.10.2024
 

Kæru nemendur og starfsfólk  Flóaskóla !

Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að vera bleik - fyrir okkur öll !

Klæðumst  bleiku og lýsum upp  skammdegið í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu .

 

Kveðja 

Flóaskóli

 

Skólasetning Flóaskóla

Updated: Oct 2, 2023

Skólasetning Flóaskóla verður miðvikudaginn 23. ágúst næstkomandi í Þjórsárveri kl 10:00, gert er ráð fyrir að allir nemendur mæti með sínum forráðamönnum.

Að loknu stuttu ávarpi skólastjóra fylgja nemendur umsjónarkennurum í heimastofu. Kennarar kynna skipulag skólastarfs komandi vetrar, fyrirkomulag náms og aðra mikilvæga þætti í skólastarfinu. Nánari upplýsingar um skólabyrjun þeirra verða sendar til forráðamanna.

Skólahald hefst síðan samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 24. ágúst.

Líkt og undanfarin ár er lengd viðvera eftir skóla – frístund - í boði fyrir nemendur í 1. - 4. bekk, skráningu í hana fyrir komandi skólaár þarf að vera lokið fyrir 11. ágúst. Sumarfrístund verður opin frá og með 16. ágúst, mánudag til fimmtudags frá kl. 8:00 til 16:30 og frá kl. 8:00 til 16:00 á föstudag, fram að skólasetningu. Senda þarf sér skráningu vegna þessara daga. Skráning í frístund er send á netfangið floaskoli@floaskoli.is.


Comments


bottom of page