top of page

Flóaskóli sigraði Eftirréttakeppni grunnskóla!

Updated: Apr 24, 2023

Fulltrúar Flóaskóla, þær Ásdís Eva, Júlía Kolka, Svandís og Þórunn Eva, gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Eftirréttakeppni grunnskólana 2022 sem haldin var í samstarfi við Klúbb matreiðslumeistara og IÐUNA fræðslusetur. Þær sýndu mikinn metnað við undirbúning keppninnar og liggur mikil vinna að baki, en stelpurnar eru búnar að æfa sig, þróa uppskriftirnar og framsetningu réttanna í magar vikur undir góðri leiðsögn Iðunnar Ýrar heimilisfræðikennara. Þær báru fram skyrköku með kanilbotni og karamelluseruðum kókos, panna cotta með hvítu súkkulaði og kartöflukanilköku með rjómaostakremi, en kartöflurnar tóku þær með sér úr Flóanum.

Glæsilegur árangur hjá þeim en þær fengu þær auka stig fyrir samvinnu og frumleika. Til hamingju stelpur!













bottom of page