top of page

Bóndadagur 23.01.2026

  • floaskoli
  • Jan 23
  • 1 min read

Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur þorra sem er fjórði mánuður vetrar að forníslensku tímatali og mun upphaf hans upphaflega hafa miðast við fyrsta nýtt tungl eftir vetrarsólhvörf. Þorri hefst alltaf á föstudegi í 13. viku vetrar á bilinu 19. til 25. Janúar


Hefðir á bóndadag:

Eins segir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar að bóndi skyldi bjóða þorra velkomin með eftirfarandi hætti: ... með því að þeir áttu að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gekk í garð. Áttu þeir að fara ofan og á skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra skálmina og láta hina lafa og draga hana á eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkomin í garð eða til húsa. Síðan áttu þeir að halda öðrum bændum úr byggðarlaginu veislu fyrsta þorradag; þetta er „að fagna þorra“.


Í bók Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings, Saga daganna, segir að úti í sveitum munu þorrablót hafa hafist austur á Fljótsdalshéraði 1886 eða 1887, síðan í Eyjafirði laust eftir aldamót. Smám saman breiðist siðurinn út um landið austanvert, en virðist varla stinga sér niður vestanlands fyrr en upp úr 1920. Þó er óvíða um árvissan atburð að ræða. „Milli 1940-50 taka sum átthagafélög í Reykjavík að halda þorrablót, og hafa Eyfirðingar líklega verið fyrstir til þess. En það er naumast fyrr en um 1960, sem þorrablót fara að verraða sjálfsögð athöfn í hverri sveit og kaupstað. Þá kemur og til sögunnar orðið þorramatur, sem a.m.k. mun ekki hafa sést á prenti fyrr en 1958.




Comments


bottom of page