Flóaskóli keppir í úrslitum í Skólahreysti 2025.
- floaskoli
- May 7
- 1 min read
Flóaskóli keppti í undanriðlum í Skólahreysti í gær, þriðjudaginn 6. maí. Keppnin fór fram í Íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ. Skemmst er frá því að segja að lið Flóaskóla sigraði sinn riðil nokkuð örugglega með 47 stigum. Vann Flóaskóli 4 keppnisgreinar af 5 og munaði einungis 1 armbeygju að skólinn hefði unnið allar 5 greinarnar.
Í keppnisliði Flóaskóla voru þau Kristófer Máni Andrason Forsæti 2, Magnea Bragadóttir Selparti, Freyr Sturluson Shacht Fljótshólum og Karólína Þórbergsdóttir Forsæti 1. Varamenn voru þau Guðni Bóas Davíðsson Ármótsflöt 5 og Ásta Björg Jónsdóttir Lyngholti.
Flóaskóli keppir í úrslitum laugardaginn 24. maí n.k. Keppnin verður nánar auglýst síðan en hvetjum við alla til að taka daginn frá.

Comentários