top of page

Allir með - farsælt samfélag fyrir alla - brúum bilið

  • floaskoli
  • Mar 24
  • 1 min read

Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi.

 

Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu.Íþróttahreyfingin sér um framkvæmd verkefnisins sem verður unnið á tímabilinu 2023 – 2025.

Markmið:

·         Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþróttahreyfinguna

·         Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir – með viðeigandi aðlögun.

·         Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap

 

Nú er skráning á leikana á Selfossi í fullum gangi. Það er um að gera að skrá sig sem fyrst en skráningu lýkur 25. mars.

Íslandsleikarnir er íþróttahelgi fyrir einstaklinga sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi og/eða eru með stuðningsþarfir. Á leikunum verða fimm íþróttagreinar í boði: fótbolti, körfubolti, handbolti, fimleikar og frjálsar.


Dagskrá Íslandsleikana má sjá nánar á allirmed.com


 


Commentaires


bottom of page