top of page

Ólympíuhlaup ÍSÍ

Updated: Oct 7, 2024

Ólympíuhlaup ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan. Nemendur hafa hingað til getað valið á milli þriggja vegalengda þ.e. 2,5 km, 5 og 10 km, en nú geta skólarnir ákveðið þessar vegalengdir sjálfir allt eftir því hvað umhverfi skólanna býður upp á. Að hlaupinu loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá fjölda þeirra sem hlupu ásamt heildarvegalengd sem hlaupin var. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á https://isi.is/fraedsla/olympiuhlaup-isi/

Flóaskóli mun að sjálfsögðu taka þátt eins og undanfarin ár, hlaupið okkar fer fram föstudaginn 13. September 2024 frá kl. 10:00 – 12:00.


Comments


bottom of page